English

Hey Apple!Tryggjum íslenskunni framtíð í tækni

Microsoft, OpenAI og Google tala nú þegar íslensku. Apple gerir það ekki enn.

Skorum á Apple

Með því að skrá nafnið þitt á listann biðlar þú til tæknifyrirtækja að innleiða íslensku í sínar vörur.

Íslensk tunga hefur lifað og dafnað í þúsund ár.

Hún er undirstaða menningar okkar og hugsunarháttar og við höfum lagt okkur fram við að varðveita hana og undirbúa fyrir framtíðina.

  1. 874: Ísland numið
  2. 13. öld: Íslendingasögurnar ritaðar
  3. 1584: Fyrsta íslenska biblíuþýðingin
  4. 1918: Opinbert tungumál fullvalda Íslands
  5. 2026: Opin gagnasöfn fyrir gervigreind

Nú stöndum við frammi fyrir nýrri áskorun. Til þess að íslenskan geti dafnað næstu þúsund árin þarf tæknin að skilja hana og tala reiprennandi.

Við höfum unnið okkar heimavinnu.

Íslensk málgögn eru tilbúin og standa öllum til boða, án endurgjalds. Nú bjóðum við tæknifyrirtækjum að taka síðasta skrefið.

Hér er Git-safnið

Það eina sem á eftir að gera er jafn einfalt og að ýta á takka.

Sögurnar okkar

Sögurnar okkar

Þegar fólk frá Noregi og Bretlandseyjum byrjaði að setjast að hér á Íslandi á árunum 870 til 930 talaði það Norrænu. Það var það mál sem talað var víðast hvar um Norðurlönd á þessum tíma. Norræn tunga tók miklum breytingum á næstu öldum, en á Íslandi urðu þessar breytingar á málinu miklu minni. Íslenska er í dag það tungumál sem talið er standa einna næst máli víkingaaldar. Með nútímastafsetningu geta Íslendingar nú lesið átta hundruð ára gamlan texta með sama hætti og Englendingar lesa Shakespeare.

Skömmu eftir að ritöld hófst á Íslandi fóru menn að skrifa ýmislegt fleira sér og öðrum til fróðleiks og skemmtunar. Á þrettándu öld voru færðar á skinn sögur af þeim stórmennum sem byggðu landið, Íslendingasögur, sögur Noregskonunga, fornaldarsögur Norðurlanda innihalda upprunasögu norrænna manna og í Eddunum má finna frásagnir af Óðni og Þór, dvergum og drekum. Mest af því sem við vitum um norræna goðafræði og heimsmynd víkinga kemur úr þessum íslensku miðaldahandritum.

„Tungumál víkingaaldar lifir enn í dag.“

„Lítið tungumál með stórkostlega sögu.“

„Lítið tungumál með stórkostlega sögu.“

„Lítið tungumál með stórkostlega sögu.“

Það er þó ekki sjálfgefið að tungumál þjóðar viðhaldist án mikilla breytinga í gegnum aldirnar. Raunar var stundum útlit fyrir hið gagnstæða fyrir litla þjóð undir dönskum yfirráðum og frægur er spádómur danska málfræðingsins Rasmusar Rask árið 1813 um að hundrað árum síðar myndi varla nokkur skilja íslensku í Reykjavík og tvö hundruð árum þar á eftir varla nokkur á landinu öllu. Árið 1913 var íslenska þó enn töluð í Reykjavík og hún er það enn, enda hafði markvisst verið hlúð að íslenskri tungu.

Í dag tala um 350.000 manns íslensku, nær allir hér á landi. Fá mál sem svo fáir tala halda stöðu sinni að öllu leyti og halda notkun sinni á öllum helstu sviðum samfélagsins, hvort sem er við lagasetningu, í vísindastarfi eða spjalli milli vina.

Beygingarkerfi íslensku hefur haldið sér að mestu. Nafnorð eru í þremur kynjum og beygjast í fjórum föllum, sagnir breytast eftir persónu og tölu og jafnvel nöfn fólks beygjast, svo að sama orðið getur birst í tugum mynda. Þessi auðlegð er hluti af fegurð tungumálsins og gerir um leið kröfur til tækninnar; vél sem hefur lært ensku þarf að læra íslensku á forsendum íslenskunnar. Við höfum því reynt að kenna nýrri tækni íslensku, með góðum árangri.

Aðgengi að tækni

Aðgengi að tækni

Íslendingar sinna sífellt stærri hluta daglegs lífs í gegnum tæki: lesa fréttir, panta tíma hjá lækni, fylgjast með umræðum á Alþingi og senda barnabarni sínu skilaboð. Lög kveða á um að íslensku skuli vera hægt að nota á öllum sviðum þjóðlífsins og sífellt fleiri þessara sviða eru komin inn í símann. Til þess að tæknin gagnist fólki þarf hún því að skilja það og geta talað við það á þeirra eigin máli. Geri hún það ekki ýtir hún fólki smám saman yfir í að nota ensku.

Fyrir flestum Íslendingum eru það almenn þægindi að geta talað íslensku við símann sinn. Fyrir suma skiptir það hins vegar sköpum; blint fólk sem lætur lesa upp fyrir sig af skjánum, fólk sem getur ekki skrifað, eldra fólk, börn og þá sem eru að læra tungumálið. Fyrir þessa hópa skilur tæknin á milli þess að geta bjargað sér sjálfur og að vera upp á aðra kominn.

Barn sem spyr símann á íslensku og fær aðeins „I'm sorry, could you repeat that?“ til baka lærir að íslenska sé ekki tungumál sem það getur notað í tækinu sínu. Rannsóknir sýna að enska nái nú til yngri barna en nokkru sinni fyrr, jafnt í gegnum snjalltæki og sjónvarp. Tungumál deyja sjaldan í einu vetfangi. Þau hverfa af einu notkunarsviði í einu og segja má að fá svið skipti meira máli fyrir framtíð tungumálsins en þau sem börnin verja mestum tíma sínum á.

Íslenska í tækni

Íslenska í tækni

Það að við getum notað flest tæki og tól á íslensku er langt í frá sjálfsagt. Tungumál rata ekki af sjálfu sér inn í tækni heldur þarf að hafa fyrir því að koma þeim þangað. Það höfum við Íslendingar gert, aftur og aftur, í hartnær hálfa öld.

Rekja má söguna af baráttu okkar fyrir íslensku í tækni til þess þegar tölvur og lyklaborð komu fyrst fram. Íslenska stafrófið á stafi sem nær ekkert annað tungumál notar, þar á meðal þ, og á lyklaborðum fyrstu tölvanna var ekki gert ráð fyrir þeim. Undir lok áttunda áratugarins fóru íslenskir tæknimenn því sjálfir að breyta innfluttum tölvum og prenturum svo þeir gætu notað stafina þ, ð, æ og ö. Árið 1981 skrifaði ungur forritari íslensku stafina inn í stýrikerfi Commodore-tölvanna sem hann seldi og fyrir vikið seldust þær betur en aðrar af því að þær virkuðu á íslensku. Árið 1988 ætlaði IBM að setja nýtt tölvukerfi á markað án íslenskra stafa í fyrstu útgáfu. Íslendingur sem starfaði hjá fyrirtækinu skrifaði þá höfuðstöðvunum bréf á ensku þar sem stafirnir W, X, Y og Z höfðu verið fjarlægðir til að vekja athygli þeirra á því hvað það þýddi fyrir tungumál ef nokkrir stafir þess hyrfu. Þetta bar tilætlaðan árangur og fóru íslensku stafirnir á endanum inn í kerfið.

Árið 1992 lögðu Alþjóðastaðlasamtökin svo til eftir mikinn þrýsting frá Tyrkjum að stafirnir þ, ð og ý yrðu felldir úr alþjóðlegu stafatöflunni, sem þekktist sem Lat-1, fyrir lyklaborð. Hugmyndin var að fella út þessa séríslensku stafi til að gera rúm fyrir sértyrknesk tákn. Íslendingar brugðust ókvæða við þessum áformum og blandaði Jón Baldvin Hannibalsson, þáverandi utanríkisráðherra Íslands, sér á endanum í málið. Beindi hann því til sendiherra Íslands, sérstaklega í EFTA- og Evrópusambandsríkjum, að taka málið upp og á endanum var tillagan felld með 24 atkvæðum gegn 6. Það er því ekki sjálfsagt að við Íslendingar getum skrifað á eigin tungumáli á tölvum okkar og hefur beinlínis verið barist hart fyrir því í gegnum árin.

Annað dæmi um baráttu þessa er frá árinu 1998 þegar Microsoft hafði hafnað því að þýða Windows á íslensku. Þetta sættu íslensk stjórnvöld sig ekki við og rataði deilan meðal annars í bandaríska fjölmiðla. Að lokum, í janúar 1999, skrifaði Microsoft undir samning við íslenska ríkið um að Windows kæmi út á íslensku og hétu stjórnvöld því á móti að beita sér gegn ólöglegri notkun hugbúnaðar hér á landi.

En tæknin heldur áfram að þróast og nýjar áskoranir skjóta upp kollinum. Kom að því að talmál fór að bætast við sem samskiptamál við tölvur þegar þær fóru að geta talað og hlustað. Árið 2012 raðaði evrópsk úttekt á stöðu tungumála í stafrænum heimi íslensku næstneðst af þrjátíu Evrópumálum, því hér skorti tilfinnanlega gögn og tól fyrir taltækni. Í kjölfarið fór af stað átak til að gera á því bætur. Háskólinn í Reykjavík réðst í samstarf við Google um að safna gögnum fyrir talgreiningu og fékk 563 Íslendinga til að lesa setningar inn í Android-síma í sérstöku átaki. Þetta varð nóg til að Google gæti þróað talgreiningu fyrir íslensku sem fyrirtækið gaf svo út í tækjum sínum. Átakið var keyrt undir heitinu Almannarómur og ber miðstöð gervigreindar og máltækni á Íslandi í dag það nafn.

Árið 2018 tóku stjórnvöld svo ákvörðun um að ráðast í stórátak til að bæta stöðu íslensku í stafrænum heimi. Í stað þess að bíða eftir að stóru fyrirtækin bættu íslensku við lausnir sínar skyldi Ísland byggja grunn máltækni sinnar sjálft og gera hann opinn og aðgengilegan. Fimm ára áætlun, fjármögnuð með 2,2 milljörðum króna, var unnin af Samstarfi um máltækni (SÍM), samstarfi háskóla, rannsóknastofnana og fyrirtækja, og Almannarómur hélt utan um verkið. Undir lok áætlunarinnar, árið 2023, má segja að grunnstoðirnar hafi verið komnar; gögn og grunnlíkön höfðu verið gefin út fyrir íslenska talgreiningu, talgervignu vélþýðingu milli íslensku og ensku og íslenskt textasafn upp á um 2,4 milljarða orða. Samrómur, safn með röddum um 18.000 Íslendinga, var liður í þessu átaki. Allt var þetta gefið út undir opnum leyfum til að auðvelda fyrirtækjum að innleiða íslensku inn í kerfi sín. Það upplegg hefur skilað töluverðum árangri. Microsoft gaf út íslenskar raddir og íslenska talgreiningu árið 2022 og nýtti til þess gögn úr máltækniáætlun.

Í maí 2022 fór svo íslensk sendinefnd undir forystu forseta Íslands til vesturstrandar Bandaríkjanna á fund nokkurra stærstu tæknifyrirtækjanna til að kynna þetta átak. Þar á meðal var OpenAI, sem þá var aðeins lítið fyrirtæki sem nokkrir tugir störfuðu hjá. Segja má að fyrirtækið hafi heillast af þessari nálgun Íslands í máltækni og í kjölfarið var komið á samstarfi milli OpenAI og íslenska fyrirtækisins Miðeindar um að þjálfa ChatGPT-4, sem fyrirtækið var þá með í þróun, sérstaklega á íslensku gögnunum til að sjá hvort það gæti lært svo lítið tungumál. Fjörutíu íslenskir sjálfboðaliðar komu að verkefninu og veittu þjálfuninni lið með mannlegri endurgjöf.

Þegar GPT-4 var kynnt í mars 2023 var íslenska eina tungumálið utan ensku sem líkanið hafði verið þjálfað markvisst á og fylgdi útgáfunni kynning og grein frá OpenAI um þetta verkefni, sem var eitt af sex sérstökum þróunarverkefnum fyrirtækisins með líkaninu og það eina sem snerist um þjóðtungu.

Árið 2024 tóku Íslendingar svo saman lærdóminn af máltækniáætlun og samstarfinu við OpenAI í skýrslunni Íslenska aðferðin: Hvernig stuðla má að fjölbreytni tungumála og menningar á sviði gervigreindar. Hugmyndin var að breiða út þessa aðferðafræði svo fleiri smáþjóðir gætu nýtt sér hana til að tryggja stafræna framtíð sinna tungumála. Í skjalinu var einnig að finna ákall til alþjóðasamfélagsins um aukna samstöðu í þessum málaflokki og tillaga lögð fram um stofnun alþjóðlegs samstarfsvettvangs í málaflokknum. UNESCO tók þessu boði og kom á fót alþjóðlegu bandalagi um fjölbreytni tungumála og menningar í gervigreind, í samstarfi við Ísland sem leiðir verkefnið í dag.

Íslenska og Apple

Íslenska og Apple

Í dag er íslenska aðgengileg í helstu stafrænu lausnum erlendra stórfyrirtækja. Microsoft og Google bjóða íslenskt viðmót, íslenskar raddir og talgreiningu, og öll helstu mállíkön, frá OpenAI, Google, Anthropic, Meta og fleirum, virka vel á íslensku. Á þessu er þó ein undantekning og hún er sú tækni sem finna má í vasa flestra Íslendinga.

Siri skilur ekki íslensku, iPhone tekur ekki við íslensku tali, síminn les ekki skjáinn upp á íslensku og stýrikerfið sjálft er ekki til á íslensku. Öll forrit Apple heita enskum heitum í símum Íslendinga og eru nú vísbendingar uppi um að mörg börn þekki ekki íslensk orð yfir vekjaraklukku, myndavél eða vasaljós og tali frekar um alarm, camera og flashlight.

Þetta var ekki alltaf svona. Á níunda áratugnum þýddi Apple-umboðið á Íslandi viðmót Macintosh-tölvanna á íslensku og frá 1991 var allt stýrikerfið, OS 7, fáanlegt á íslensku. Lengi vel var íslenska viðmótið helsta sérstaða Apple-tölva á íslenska markaðnum. Þegar Mac OS X kom út árið 2002 þurfti að byrja upp á nýtt; umboðið gaf út þýðingarpakka fyrir einstök forrit en stýrikerfið í heild sinni var aldrei þýtt aftur, og með Mac OS X 10.5 lokaði Apple fyrir slíkar viðbætur af öryggisástæðum. Síðan hefur stýrikerfið ekki verið þýtt opinberlega. Íslenskt lyklaborð kom í iOS 6, árið 2012, og sjálfvirk leiðrétting (e. auto correct) á íslensku í iOS 7 ári síðar. Síðan hefur ekkert gerst. Þetta eru enn einu tveir þættirnir sem virka á íslensku í Apple-tækjum.

Fyrir rúmum þrjátíu árum sýndu Íslendingar fram á það að það er hægt að bjóða upp á íslensku í Apple-tækjum, og leystu meira að segja vandann sjálfir fyrir Apple. Í dag eru gögnin til staðar; íslenskar raddir og talgreiningartækni eru til opin og ókeypis. Og við höfum meira að segja tekið okkur til og þýtt stýrikerfi Apple, sem má nálgast hér. Það litla sem á eftir að gera er eins einfalt og að ýta á hnapp.

Hæ, ertu frá Apple? Ef svo er, hafðu samband við almannaromur@almannaromur.is og gerum þetta að veruleika!

Að verkefninu standa

  • Stjórnarráð Íslands, Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
  • Íslandsstofa
  • Almannarómur
Inspired by Iceland
Rekið af
Business IcelandAlmannarómur